Meistaradeildin
13.11.2007 14:01:24 / sollabolla

Leti, leti

Það er nú orðið ansi langt síðan ég hef bloggað hér á þessari síðu þannig að nú á að bæta úr því.... Margt hefur gerst síðan ég bloggaði síðast. Við erum orðnir vesturbæjingar (þó maður verði nú alltaf Þorlákshafnarbúi í hjarta sér) og líður bara mjög vel hér. Ásgeir Jökull rýkur upp og er alltaf að stækka. Ég er ennþá heimavinnandi en er búin að ráða mig á blóðsjúkdómadeildina Lannsanum frá og með 1. janúar. Ég hlakka bara mikið til en það leynir sér ekki smá spennuhnútur í maganum samt..... Þó ég sé BARA heima er nóg að gera, við Ásgeir reynum að fara í baðhúsið svona 4 sinnum í viku og erum yfirleitt mætt upp úr kl 9 á morgnana. Svo er ég búin að fara á 2 námskeið tengd vinnunni (sem ég er ekki byrjuð í;), eitt um fjölskylduhjúkrun og eitt um krabbameinslyf. Ég skráði mig líka sem sjálfboðaliða hjá Rauða krossinum og fór á námskeið hjá þeim sem tengist heimsóknarvinum. Svo er maður auðvitað í fullri vinnu að sinna Ágeiri en hann lætur nú alveg hafa fyrir sér þó hann sé voða góður. Við erum svo að fara að byrja í ungbarnasundi í kvöld og verðum 2x í viku næstu 5 vikurnar á þriðjudögum og föstudögum kl 17:30. Hann er búinn að fá rosa flotta sundskýlu og lítur ekkert smá vel út í henni;). Ég er svo líklega að fara að taka nokkrar vaktir á Grund fram að áramótum svona til að hafa smá meira að gera en eins og allir vita vantar allstaðar hjúkrunarfræðinga.... Svo er það bara N.Y. baby eftir 15 daga en ég, Pálína, Sonja, Soffía, Eva, Anna Huld og Kristjana ætlum að skella okkur í smá verslunarferð.... Kem svo heim 3. des beint í jólaundirbúninginn og baksturinn... Hér á þessu heimili verða sko föndruð jólakort og bakaðar smákökur... ég hef nefnilega svo mikinn tíma;)

Lofa að láta ekki líða svona langan tíma næst... bið að heilsa í bili  


» 5 hafa sagt sína skoðun

11.09.2007 12:56:15 / sollabolla

Halló

Já við erum á lífi.... það hefur bara svo margt verið í gangi undanfarið að maður gleymir sér bara í blogginu... svo var ég internetlaus í heilan mánuð fyrir austan (kannski engin afsökun en svona er þetta bara)!

Af okkur er annars allt gott að frétta. Fórum til Bandaríkjanna í afslöppun og sól sem var alveg meiriháttar. Næstum strax eftir að við komum heim var ferðinni heitið á Eskifjörð þar sem Hilmir var að leysa af í 4 vikur. Við höfðum það bara mjög gott þar og skoðuðum austfirðina nokkuð vel. Ég hugsa samt að það sé dálítið öðruvísi að vera þarna á sumrin heldur en veturna.... Ég hitti nú samt Oddnýju og strákana hennar og  var það mjög gaman.

Nú erum við komin aftur í siðmenninguna og erum smám saman að flytja okkur í Hjarðarhagann, svona hægt og rólega, læt ykkur vita þegar allt er komið í stand....


» 6 hafa sagt sína skoðun

04.07.2007 16:14:11 / sollabolla

Margt að gerast....

Já maður hefur verið heldur lélegur í blogginu þessa dagana en það finnst bara varla tími í það. Ég er aðalega búin að vera að njóta góða veðursins og hugsa um litla engilinn minn sem er sko fullt starf. Hann fékk nú loksins nafn í gær og var skírður ÁSGEIR JÖKULL en Ásgeirs nafnið er eftir pabba hans Hilmis en Jökull út í loftið. Skírnin fór mjög vel fram og hann var svo stilltur á meðan. Ætlaði eitthvað aðeins að fara að kvarta þegar vatninu var ausið yfir hann en hætti svo við og var bara góður. Eftir skírnina fórum við svo til afa í sveitinni þar sem amma og mamma voru búnar að útbúa dýrindis máltíð sem fór vel í mannskapinn. Við ákváðum að hafa þetta bara lítið og því voru bara foreldrar, systkyni, afar og ömmur. Þetta voru samt 20 manns....

Í síðustu viku var ég í Reykjavík frá miðvikudegi fram á sunnudag að njóta veðurblíðunnar. Ég skellti mér í þriggja tíma göngutúr bæði á fimmtudeginum og föstudeginum með Önnu Huld og Evu og fór svo á Helgafell með Hilmi og Ásgeiri Jökli seinni partinn. Hann var hinn ánægðasti og svaf bara allan tímann;)

Svo er það bara USA 19. júlí næstkomandi....... 


» 7 hafa sagt sína skoðun

13.06.2007 13:48:22 / sollabolla

Orðin hjúkrunarfræðingur

Það er nú orðið annsi langt síðan ég skrifaði síðast en það er búið að vera mikið að gera. Nú er maður loksins orðinn hjúkrunarfræðingur, reyndar ekki búinn að fá löggildingu en fæ hana vonandi í næstu viku. Ferðin norður síðustu helgi gekk mjög vel, svona í heildina séð en ég, Hilmir og litli kútur lögðum af stað rúmlega fjögur á föstudaginn. Restin af fjölskyldunni var þegar lagður af stað og voru því kominn aðeins á undan okkur. Það  var sko vaknað snemma á laugardeginum en ég vaknaði kl 6:15 því litli kútur þurfti sopann sinn og svo dormaði ég til kl 7:30 en þá var farið fram úr því biðröðin á klósettið var löng þennan morgunin því allir þurftu að baða sig og snyrta og svo þurfti ég að mjólka mig áður en við fórum. Útskriftin byrjaði kl 10:30 en við þurftum að vera mætt kl 10. Við lögðum af stað í 16 stiga hita og sól en enduðum á Akureyri í 7 stiga hita og þoku:S Ég var nú ekki alveg sátt við það en sem betur fer var komin sól þegar útskriftin var búinn og við fórum í útimyndatökuna. Svo var farið að næra sig og svo brunað aftur upp í bústað þar sem við nutum veðurblíðunnar. Við grilluðum svo um kvöldið humar og læri og það var ís í eftirrétt. Allt mjög flott og fínt. Ég hafði því miður ekki lyst á ísnum því þetta kvöld fékk ég stálma í annað brjóstið og hita með því, mér til mikillar gleði og ánægju:evil:

Mamma, pabbi, Ingibjörg, Siggi, Jóhanna og Böddi fóru svo heim rétt eftir hádegi á sunnudeginum en við Hilmir ákváðum að njóta þess að vera áfram einn dag auk þess sem ég var enn frekar slöpp. Við fórum því heim á mánudeginum. Þetta var í flesta staði frábær helgi og ég er öll miklu hressari. Mjólkurframleiðslan datt því miður niður út af þessu en ég er að vinna í því að ná henni upp aftur.

Svo er það bara veislan næstu helgi en hún  verður á laugardaginn þar sem ég og Fríður höldum upp á þessa merku áfanga okkar saman....

Bið að heilsa í bili


» 8 hafa sagt sína skoðun

25.05.2007 13:49:00 / sollabolla

Nóg að gera...

Já þótt skólinn sé búinn er sko nóg að gera. Maður hefur varla tíma til að gera það sem maður ætlar sér;) Í gær átti Ingibjörg afmæli og því var brunað yfir í næsta hús í kökur og fínerí. Litli prinsinn fékk auðvitað að koma með en það var í fyrsta skipti sem hann fékk að heimsækja hana frænku sína. Margt var um manninn og mikið skrafað en Birgitta dóttir hans Steina kom með gullkorn kvöldsins: ,,Sólveig, ég er búin að úskýra hann Jhonny!" Þar með er það vandamál leyst;) Í dag ætlum við Ingibjörg svo að kíkja aðeins upp á Laugarvatn og heiðra hana Siggu frænku með nærveru okkar en hún var að klára stúdentinn og bíður okkur því í smá kaffisamsæti. Á morgun fer ég svo til höfuðborgarinnar þar sem hún Sigga mín (mikið af Siggum í kringum mig!!) ætlar að halda upp á afmælið sitt. Við ætlum að hittast heima hjá henni og svo verður skundað út að borða. Stelpurnar ætla svo eitthvað út á djammið á eftir en ég fer þá heim til Hilmis þar sem litli kútur verður í pössun, fyrst hjá ömmu sinni og afa en svo tekur pabbinn við þegar hann kemur heim úr vinnunni. Ekki það að hann sé að passa barnið, er alltaf á móti því þegar sagt er að pabbar séu að passa börnin sín.... þá er ég semsagt að passa barnið í svona 23 tíma á sólahring;) (sleppi 1 klst þar sem ég fer í sturtu, á klósettið, eða sinni litlum erindum....)

Næstu helgi er svo bekkjarmót hjá gamla grunnskólabekknum mínum og ætti það nú að vera mjög svo forvitnilegt og skemmtilegt. Við ætlum að hittast á laugardaginn og skemmta okkur aðeins saman. Ég ætla nú ekki á sjómannadagsballið þetta árið enda hefur maður tekið þau allmörg síðustu árin;)

Svo er það bara útskriftin.......


» 3 hafa sagt sína skoðun

18.05.2007 18:16:29 / sollabolla

Búin með skólann;)

Jæja, þá er fjögurra ára háskólanámi loksins lokið....  Þetta er nú alveg ótrúlegt, maður trúir þessu nú varla!!! En þetta er sko góð tilfinning. Kynningin gekk bara mjög vel og haldiðið ekki að maður sé bara orðinn celeb þar sem Rúv kom til að taka viðtal við okkur út af þessu mjög svo áhugaverða lokaverkefni sem birtist svo í sjónvarpsfréttunum einhvern næstu daga... Upp úr því viðtali var svo unnið útvarpviðtal sem var spilað í svæðisútvarpinu í dag.... Geri aðrir betur;) Svo ætlum við bekkjarsysturnar að fara út að borða í kvöld til að binda lokahnút á þetta.

Annars er litli prinsinn orðinn mánaða gamall og er alltaf að stækka. Hann er ennþá pirraður í maganum sínum en vonandi lagast það fljótlega.

Bið annars að heilsa i bili


» 11 hafa sagt sína skoðun

09.05.2007 11:50:16 / sollabolla

Barnanet.is

Eins og glöggir einstaklingar hafa kannski tekið eftir er ég búin að aflæsa síðunni og taka út myndaalbúmin. Ég gerði þetta þar sem ég er búin að stofna síðu fyrir prinsinn á barnaneti. Það er linkur af þessari síðu inn á hana, annars er slóðin www.barnanet.is/litillprins. Það er lykilorð inn á myndasíðuna þar og er það það sama og var inn á þessa síðu. Þið verðið samt að sýna mér smá þolinmæði, síðan er í vinnslu;)

Annars skilum við lokaverkefninu í dag:haha: þannnig að lífið brosið bara við manni þessa dagana..... Það er svolítið erfitt að trúa því að þetta sé alveg að verða búið og að maður sé að verða fullgildur hjúkrunarfræðingur en svona er lífið:) Einn hluti endar og annar tekur við....


» 10 hafa sagt sína skoðun

06.05.2007 16:24:07 / sollabolla

Allt á uppleið....

Jæja, eftir mjög erfiða daga í brjóstagjöf eru hlutirnir nú loks á uppleið. Sýkingin er að láta undan og brjóstið er óðum að jafna sig. Því miður eru sárin alveg á eins góðri leið með að gróa... en vonum að það lagist fljótlega. Er komin með sýkladrepandi krem til að bera á sárin og vonum að þetta lagist fljótlega. Ég fór til brjóstagjafaráðgjafa á fimmtudaginn sem fékk mig nú til að líða aðeins betur. Hún fullvissaði mig um að ég væri að gera allt rétt en því miður væri það tunguhaftið á litla prinsinum sem væri að trufla brjóstagjöfina. Það olli því að hann gat ekki sogið réttu og sárin mynduðust og gátu ekki gróið á meðan. Hún kallaði því til barnaskurðlækni sem KLIPPTI á tunguhaftið og gengur honum nú miklu betur að sjúga, þessu litla greyi. Nú er bara að bíða og sjá hvort kremið og það að hann sjúgi rétt verði ekki til þess að þessi leiðinda sár grói á næstu tveimur vikum. Ég er reyndar enn á sýklalyfjunum, betra að klára skammtinn til að sýkingin komi ekki aftur, og því er hann enn slæmur í maganum en þetta fer nú allt að taka enda. Bara 3 dagar eftir af kúrnum.....

Annars er það að frétta af lokaverkefninu að það fer að öllum líkindum prentun á morgun, tafðist aðeins, og svo verður því bara skilað sem fyrst:D Ég fer svo norður 16. eða 17. maí til að kynna verkefnið og þá er þetta búið:) Auðvitað kemur litli prinsinn með og mamma ætlar að koma líka til að passa hann á meðan ég er í þessu verkefnastússi. Svo kemur pabbi norður á föstudagskvöldinu með kerru til að flytja mig og allt mitt hafurtask suður í síðasta skiptið... Það verður hálf skrítið....

En bið annars að heilsa í bili....

P.s. Fríður mín, hvenær á eiginlega að koma í heimsókn;)??


» 11 hafa sagt sína skoðun

02.05.2007 12:10:39 / sollabolla

Vika 2...

Vika tvö byrjað nú mjög vel en fór því miður versnandi þegar leið á! Ekki fyrir prinsinn litla, sem betur fer heldur mig. Ég vaknaði á sunnudagmorgun með stálma í brjóstunum og þeir sem hafa fengið slíkt vita að það er ekki það þægilegasta sem maður lendir í:( Við tóku heljarinnar aðgerðir til að reyna að losna við þetta helvíti og tókst það í öðru brjóstinu en hitt var eitthvað erfiðara og á mánudagsmorgun var komin sýkin í það með tilheyrandi 40 stiga hita og slappleika hjá mér:cry: Ég segi nú bara að það var eins gott að Hilmir var hérna því ég var svo slöpp að ég gat varla hugsað um strákinn minn. Mamma hætti svo í vinnunni kl 14 því Hilmir þurfti að fara að vinna. Í svona tilvikum er gott að eiga góða að og hafa mamma og Jóhanna verið mjög duglegar að hjálpa mér með drenginn í þessum veikindum. Hitinn er sem betur fer farinn úr mér núna en ég var sett á sýklalyf til að vinna á sýkingunni. En ekki er ein báran stök... Þar sem ég er með ofnæmi fyrir pensilíni fékk ég Dalacin í staðinn og það fer extra ílla í litla maga þannig að hann hefur verið mjög órólegur og slæmur í maganum sínum síðasta sólahring, greyið litla....  Vonum bara að ég lagist sem fyrst svo ég þurfi ekki að taka þetta of lengi....

En bið að heilsa ykkur í bili úr veikindabælinu;)

 


» 7 hafa sagt sína skoðun

25.04.2007 21:23:59 / sollabolla

Fyrsta vikan

Já það er sko ekki allt í rólegheitunum lengur... þremur dögum eftir síðustu færslu fæddist litli prinsinn eða þann 17. apríl kl 14:30 eftir mjög svo stuttan tíma. Ég byrjaði að finna verki um miðnætti þann 17. og komu þeir á um klukkutíma fresti þannig að ég vissi nú að hann væri ekki alveg að koma strax og ákvað að reyna að hvíla mig fyrir átökin. Eitthvað gekk nú illa að sofna en kl 3:30 vakti ég mömmu og þá voru hríðarnar að koma með um 20 mín millibili. Ég hafði ákveðið að láta Hilmi ekki vita fyrr en um morgunin þar sem ég vildi að allavega annað okkar myndi vera útsofið daginn eftir:) en ég hringdi í hann rétt fyrir kl 8 þegar hann var að fara í vinnuna og vissa hann strax hvað klukkan sló. Ég hafði hringt upp í Hreiður um kl 5 og látið vita af mér og hún sagði mér að koma um morgunin til að fara í mónitor og sjá hvort ég væri ekki örugglega komin í fæðingu. Ég var komin upp á deild um kl 9 og jú, hríðarnar voru að koma með svona 10 mín millibili. Allt leit vel út og hún sendi mig heim með 1 parkódín til að reyna að leggja mig og bjóst við að sjá mig aftur seinni partinn. Ég fór þá heim til Hilmis, fékk mér að borða, tók töfluna og lagði mig. Ég náði nú að sofa í svona 2 tíma en rétt fyrir kl 1 vaknaði ég við það að belgurinn sprakk (fann það sko mjög greinilega) og þá fór sko heldur betur að kárna gamanið. Nú komu hríðarna með 2 mín millibili og ég hélt að ég kæmist ekki upp á deild... Mamma og Eirika mamma hans Hilmis fóru með mig en ég hafði sagt Hilmi að hann gæti alveg unnið til 4 eins og hann átti að gera því þetta kæmi nú ekki alveg strax.... Þegar ég kom upp á deild var ég komin með 4 í útvíkkun og hríðarnar voru að koma á 1 mín fresti. Ljósmóðirin lét renna í bað fyrir mig (Hilmir, sem þá var kominn) sá nú reyndar ekki alveg hvernig ég ætlaði að komast í baðið en þegar það var tilbúið 40 mín seinna var útvíkkunin orðin 10 og ég komin með rembingsþörf þannig að ekki fór maður í baðkarið góða. Stuttu seinna fæddist svo þessi fallegi drengur, 13 merkur og 50 cm, fallegasta barn í heimi:haha:

Vikan hefur liðið rosalega fjótt og það hefur bara gengið vel með litla prinsinn. Hann er þó mikill selskaps maður og ekki mjög hrifinn af því að liggja einn í vöggunni sinni og foreldrarnir kannski aðeins of góðir við hann að taka hann alltaf upp þegar hann grætur.... en maður hugsar alltaf: seinna læt ég hann venjast vöggunni..... hvenær sem það nú verður....

Takk æðislega fyrir allar kveðjurna og hlýju orðin, það er virkilega gaman að sjá hversu margir hafa verið að fylgjast með manni:)

Ég set svo fljótlega inn myndir af litla prinsinum en það eru myndir af honum inni á síðunni hennar Ingibjargar eins og áður hefur komið fram.....


» 15 hafa sagt sína skoðun

14.04.2007 11:04:31 / sollabolla

Allt í rólegheitunum...

Nú er allt að verða tilbúið fyrir barnið sem á að fæðast eftir 11 daga. Hér varð uppi fótur og fit (hjá öllum nema mér) fyrir helgi þegar fattaðist að ýmislegt smálegt var eftir að kaupa og redda og því brunuðum ég, mamma og pabbi til Reykjavíkur í gær og keyptum og sóttum það sem þurfti. Það eina sem vantar núna eru bleyjurnar og þær verða nú bara keyptar á leiðinni heim af fæðingardeildinni.... Annars er ég búin að ákveða að eiga í Hreiðrinu og fara svo heim til Hilmis og vera þar í nokkra daga til að fá heimaþjónustu frá ljósmóður sem kemur þá 2x á dag til að líta eftir okkur. Finnst það betra en að fara beint heim eftir 24 tíma og fá ekki ljósmóður nema 1x í viku... Mér finnst ég allavega þurfa aðeins meira eftirlit en það svona til að byrja með!!

Lokaverkefnið gengur bara vel, allt að smella og eins og þetta lítur út í dag ætti það að vera tilbúið með góðum fyrirvara:) Guði sé lof fyrir það. Það er samt mjög skrýtið að vera ekki að fara i próf og að skólinn sé að verða búinn og þá meina ég alveg búinn því ekki er maður að fara aftur í skólann í haust.... Ég er ekki einu sinni að fara að vinna í sumar.... þetta verður eitthvað skrýtið en vafalaust mjög skemmtilegt;)

Bið annars að heilsa í bili....


» 48 hafa sagt sína skoðun

07.04.2007 11:57:25 / sollabolla

Páskar

Síðasta þriðjudag var lagt land undir fót og keyrt nánast í einum rykk suður yfir heiðar til að hitta fjölskyldu og vini yfir páskahátíðina. Sonja og Anna Huld komu með mér og skemmtum við okkur bara nokkuð vel á leiðinni, enda óvenju skemmtilegar ungar stúlkur þar á ferð;) Annars er ég komin suður ,,for good", þ.e.a.s. ég fer ekki aftur norður fyrr en barnið er fætt og þá bara rétt til að kynna lokaverkefnið þann 18. mai og tæma íbúðina. Þangað til er það bara verkefnavinna á fullu til að vera búin með sem allra mesta þegar krílið kemur í heiminn en það eru víst bara 18 dagar þangað til...... Dálítið ógnvekjandi en samt mjög svo spennandi á sama tíma:haha:

Lokaverkefnisvinnan gengur annars bara mjög vel og ætti alveg að smella hjá okkur á réttum tíma (gott að vera skipulagður) en auðvitað er þetta pínu stressandi að hafa þetta hangandi yfir sér... Tökum bara íslenska háttinn á þetta: þetta reddast allt saman!!!

Annars bið ég bara að heilsa í bili....


» 6 hafa sagt sína skoðun

29.03.2007 10:28:51 / sollabolla

4 vikur eftir....

Guð hvað ég er fegin að hafa ekki verið ólétt á 3. ári... Við erum búnar að vera í skólanum í þessari vikur og það er bara ekkert grín að sitja allan daginn yfir einhverjum fyrirlestrum þegar maður er kominn 36 vikur á leið!!!! Sem betur fer er þetta bara ein vika en ef ég hefði verið ólétt á 3. ári þá hefði ég þurft að vera 5 vikur í verknámi og svo 6 vikur í skólanum frá kl 8-16 flest alla daga.... Alltaf gott að líta á björtu hliðarnar:)

Annars er bara allt gott að frétta. Tæp vika þar til ég kem heim. Heilsan er fín, er dálítið þreytt eins og gengur og gerist og sef misvel á nóttunni en annars held ég að ég geti lítið kvartað. Það er nóg að gera í félagslífinu hjá mér þessa dagana (kannski þess vegna sem maður er svona þreyttur;) ). Síðasta föstudag fórum við í vísindaferð í Norðlenska og svo pizzur frá Bautanum á eftir á Kaffi Amour. Á laugardaginn var okkur boðið í afmæli í Melrose hjá strákunum þar og var boðið upp á dýrindis pottrétt. Ég fór nú heim rúmlega ellefu en þarna voru nú nokkur fljóð sem tóku djammið alveg út fyrir mig;) Sunnudagurinn var rólegur fyrir utan það að ég, Pálína og Soffía fengum okkur að borða á Nings um kvöldið (nammi namm). Skólinn byrjaði svo á mánudaginn og auðvitað þurfti að halda upp á það með því að fara með skagastelpunum út að borða á Greifann!! Á þriðjudaginn buðum við svo Lísbet og Ómari í mexikóska tómat-kjúklingasúpu sem var geggjað góð og skyrdesert sem breyttist í ís með heitri Marssósu;) Í gær var öllum bekknum svo boðið út að borða af FSA á Strikinu eftir að við vorum búnar að háma í okkur allskyns kræsingar í skólanum.... Í dag ætlar hjúkrunarfélagið svo að bjóða okkur í mat á Greifanum.... Maður er bara alltaf að borða úti....  Anna Magga systir hennar mömmu hringdi svo í mig í gærkvöldi en hún og Sæmi, Gunna og Heiðrún eru að koma norður og vilja auðvitað hitta mig í leiðinni (þó það nú væri;) ) og vilja bjóða mér út að borða á laugadaginn;) Eins gott maður hefur góða ástæðu til að borða svona mikið:haha: En það verður frábært að hitta nokkra fjölskyldumeðlimi hérna á norðurhjara:)

Bið annars að heilsa í bili....


» 5 hafa sagt sína skoðun

20.03.2007 21:06:05 / sollabolla

5 vikur eftir......

Ég er búin að endurheimta stelpurnar að sunnan. Þær komu aftur í dag þessar elskur þó svo að Sonja ætli að yfirgefa okkur strax aftur um helgina en það er víst bara til að næla sér í smá pening svo við fyrirgefum henni það:) Annars er ég lítið búin að vera að gera undanfarið annað en að vinna í lokaverkefninu og fara vel með mig. Ég er orðin nokkuð hress, enn með stíflað nef en annars bara nokkuð góð. Þessi flensa tók nú samt aðeins kraftinn úr mér og ég finn alveg mun á því hversu þreyttari ég er þessa dagana. Kannski það sé frekar vegna þess að á morgun verð ég komin 35 vikur og þá eru nú bara 5 vikur eftir (rétt rúmur mánuður8| ) og maður á nú kannski ekki að vera hlaupandi upp um fjöll og dali í því ástandi..... þó konan í fréttunum áðan hafi hlaupið fram á 8. mánuð og farið svo maraþon þegar barnið var 10 vikna.... stefni nú ekki alveg á það!!!!

Barnið er nú að mestu tilbúið fyrir lífið, lungun þurfa að þroskast aðeins meira til að virka sem best utan móðurkviðs og það á eftir að bæta á sig smá fitu, annars er allt að verða ready... Það telst alveg eðlilegt að barnið fæðist á 38 - 42. viku þannig að það gæti alveg fæðst eftir 3 vikur eða 7 vikur og allt þar á milli og samt verið alveg í góðu lagi.

Ég kem hins vegar heim um páskana og fer ekkert aftur norður í bili.... Soffía og Oddný eru svo yndislegar að þær ætla að leyfa mér að fara heim og klára verkefnavinnuna bara í gegnum tölvu (við lifum á svo tæknilegum tímum;) ) þannig að ég hef minni áhyggjur af því að fara af stað hérna fyrir norðan. Hilmir er líka að fara til USA í viku núna í lok mars þannig að ég er búin að tilkynna barninu það að það megi ekki koma á meðan hann er ekki á landinu... vonum bara að það byrji snemma að hlusta á mömmu sína;)

En ég set inn eina mynd sem tekin var rétt áðan á nýja, fína símann minn, s.s. rétt tæpar 35 vikur..... 


» 6 hafa sagt sína skoðun

14.03.2007 21:24:48 / sollabolla

Ein og veik:(

Ég skil ekki hvernig ég fór að þessu en mér tókst að ná mér í flennsuna sem allir í kringum mig eru búnir að vera með síðustu vikur og mánuði en ég hélt að væri að mestu liðin hjá.... Hér eru allir búnir að jafna sig að mestu og þá bara vakna ég upp eftir smá síðdegislúr á mánudaginn með 39 stiga hita, beinverki og stíflað nef..... Pálína var send út í apótek til að versla þetta venjulega: Nezeril, hálsbrjóstsykur, blautþurrkur til að snýta sér með og panódíl. Ég hresstist nú fljótlega eftir að ég var búin að taka panódílinn og fór bara hæfilega bjartsýn að sofa á mánudagskvöldið. Vaknaði líka ágætlega hress á þriðjudeginum, með smá hitavellu en ekkert alvarlegt. En eftir því sem leið á þriðjudaginn hækkaði hitinn og panódílinn hættur að virka.... Vaknaði svo í svitabaði aðfaranótt miðvikudagsins, þurfti meira að segja að snúa sænginni við því hún var orðin svo blaut af svita (mjög svo geðslegt) en var svo ágætlega hress í morgun og fór meira að segja í skólann kl 10 í morgun í 2 tíma... Hef svo verið ágæt í dag og vona bara að það versta sé búið. Ætla bara að fara vel með mig næstu daga og vona það besta, hef sko engan tíma í svona vitleysu núna:S

Stelpurnar (Pálína, Sonja og Anna Huld) fóru svo suður í dag og verða fram á sunnudag/mánudag þannig að ég verð ein hérna næstu daga. Auðvitað er ég ekki alein þar sem Eva er nú bara í næsta húsi og Soffía svona næstum því í næsta húsi. Og svo er Lísba auðvitað í þarþar næsta hús;) Það er samt alltaf hálf leiðinlegt að vera einn heim, eða það finnst mér allavega, sérstaklega þegar maður er óléttur og lasinn.....

En bið að heilsa ykkur í bili, ætla að læra smá....


» 7 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 9